Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- lánasafn
- ENSKA
- loan portfolio
- Svið
- félagaréttur
- Dæmi
-
[is]
Gerum til dæmis ráð fyrir því að sérsniðin eining eigi lánasafn. Sérsniðna einingin fær skuldatryggingu frá annarri einingu (einingunni sem reikningsskilin taka til) til að verja sig fyrir vanskilum á hlutdeild og afborgunum af höfuðstól lánanna. Einingin sem reikningsskilin taka til hefur aðild sem ber áhættu gagnvart breytileika ávöxtunar af frammistöðu sérsniðnu einingarinnar vegna þess að skuldatryggingin tekur við breytileika ávöxtunar sérsniðnu einingarinnar.
- [en] For example, assume a structured entity holds a loan portfolio. The structured entity obtains a credit default swap from another entity (the reporting entity) to protect itself from the default of interest and principal payments on the loans. The reporting entity has involvement that exposes it to variability of returns from the performance of the structured entity because the credit default swap absorbs variability of returns of the structured entity.
- Rit
-
[is]
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1254/2012 frá 11. desember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 10, alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 11, alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 12, alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 27 (2011) og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 28 (2011)
- [en] Commission Regulation (EU) No 1254/2012 of 11 December 2012 amending Regulation (EC) No 1126/2008 adopting certain international accounting standards in accordance with Regulation (EC) No 1606/2002 of the European Parliament and of the Council as regards International Financial Reporting Standard 10, International Financial Reporting Standard 11, International Financial Reporting Standard 12, International Accounting Standard 27 (2011), and International Accounting Standard 28 (2011)
- Skjal nr.
- 32012R1254
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.